Tónlistarnám hefur marga kosti; veitir tilfinningaútrás, þjálfar hug og hönd, einbeitingu og sjálfsaga og gefur sjálfstraust, þegar nemendur greina framfarirnar og geta komið fram og spilað fyrir aðra. Tónlistarnám sem boðið er upp á er: einkakennsla á píanó og almenn forskólakennsla í einkatímum fyrir unga nemendur.
Píanónám -eins og allt tónlistarnám- gefur mikið til baka.
Í stuttu máli má nefna:
- Tilfinningaútrás, tónlistin tjáir það sem orðin duga ekki til að segja
- Eflir einbeitingu
- Þjálfar fínhreyfingar og líkamsstöðu
- Gefur sjálfstraust, -að upplifa litla og stóra sigra í framförum og að koma fram á tónleikum
- Eflir sjálfsaga og tímastjórnun
- Samkvæmt rannsóknum bæta börn í tónlistarnámi alltaf árangur í almennu námi
- Sjálfsefling